top of page
Succulent Plant
Bókhald 

Uppgjör & Skattskil
 
Endurskoðun



Settu bókhaldið í hendurnar á fagmönnum

Mánaðarlegir áskriftarpakkar sem veita 12% afslátt af heildar bókhaldsþjónustu á ársgrundvelli - Engin binding

Við bjóðum upp á framúrskarandi þjónustu á sviði

  • Færslu bókhalds

  • Gerð sölureikninga

  • Virðisaukaskattskila

  • Launavinnslu

  • Ársreikningagerðar

  • Skattskila

  • Endurskoðunar 

  • Skráningu nýrra félaga

Desktop
Green Ivy on Stone Wall

Við hjá Afstemmu erum með mikla reynslu í færslu bókhalds, launavinnslu, við gerð ársreikninga og skattskila. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og umhverfisvæna leið í okkar vinnu með rafrænu bókhaldi.

  • Við bjóðum upp á mánaðarlega áskriftarpakka

  • Við bjóðum upp á vinnu samkvæmt tímagjaldi

  • Við gerum einnig tilboð í verkefni

 

Analytics

Mánaðarlegur áskriftarpakki

  • ​Við bjóðum uppá áskriftarpakka þar sem fast mánaðargjald inniheldur alla þá bókhaldsþjónustu og launavinnslu sem fyrirtæki þarf á ársgrundvelli ásamt ársreikningi og skattframtali. ​

  • Með áskriftinni færðu betra verð fyrir þitt félag, 12% afslátt af hefðbundnu tímagjaldi og allt unnið á sama stað.

  • Þú sparar bæði kostnað og tíma.  

  • Ekki er greitt aukalega fyrir almenna ráðgjöf, hvort sem um ræðir tölvupóstasamskipti eða í gegnum símann.

  • Áskriftin veitir meira gagnsæi í tímaskráningu, fyrirsjáanleika í kostnaði og lágmarkar sveiflur á milli mánaða.

  • Áskriftin er metin út frá stærð félags, umfangi og starfsmannafjölda.

Afstemmu teymið
1BEC3D43-8F1B-4571-8C1F-B1FEE687BA39_edited.jpg

Elín Björg Ásbjörnsdóttir

Viðurkenndur bókari, stofnandi og annar eigandi Afstemmu ehf.

Elín er með áralanga reynslu í bókhaldi, launavinnslu og við að aðstoða einstaklinga og félög með skráningar hjá Skattinum. Hún er útskrifuð af skrifstofubraut MK með áherslu á bókhald og reikningsskil og einnig viðurkenndur bókari frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Elín starfaði í sex ár hjá KPMG á bókhalds- og endurskoðunarsviði.

12489456-8C08-4CE1-8EA8-6F9B36561174_edited_edited.jpg

María Kristín Rúnarsdóttir

Löggiltur endurskoðandi, stofnandi og annar eigandi
Afstemmu ehf.

María er með áratuga reynslu í bókhaldi, ársreikningagerð, samstæðuuppgjörum og framtalsgerð. Hún er útskrifuð með MACC gráðu frá HR, er með próf í verðbréfaviðskiptum og löggildingu í endurskoðun. María starfaði í níu ár hjá Eimskip í öllum deildum fjármálasviðs, níu ár hjá þrotabúi Glitnis og fjögur ár hjá KPMG á endurskoðunarsviði.

Magný_edited.jpg

Magný Jóhannesdóttir

Reynslumikill bókari með MA í markaðsfræði

Magný hefur áratuga reynslu af bókhaldi, launavinnslu og fjármálum fyrirtækja, lengst af í eigin rekstri. Hún er útskrifuð með MA í markaðsfræði og er með próf í verðbréfaviðskiptum.

Magný kemur til Afstemmu eftir 5 ár á bókhalds- og endurskoðunasviði KPMG.  Fyrir þann tíma starfaði hún m.a. hjá Kokku, Arion banka, Íslandsbanka og Sjóvá.

Eigendur

Elín Björg Ásbjörnsdótttir, Suðurtúni 36, 225 Garðabær s: 663-2374

   María Kristín Rúnarsdóttir, Gauksás 16, 220 Hafnarfjörður s: 844-2545

Work Desk

Hafðu samband

  • Facebook
bottom of page